justinbieber.jpg

Röddin hans Justin Bieber er að ganga í gegnum breytingar þessa dagana.

Justin er nú í mútum. Þetta getur verið erfitt tímabil fyrir stráka en þetta er að reynast mun erfiðara fyrir Justin.

Sem betur fer fyrir Justin er Usher að hjálpa honum að komast í gegnum þetta tímabil. Usher hefur gefið honum fjölda ráða til að forðast það að múturnar eyðileggi ferilinn hans. Usher ætti líka að vita sitthvað um þetta þar sem ferillinn hans hófst þegar hann var aðeins 11 ára.

Justin sagði við Vibe.com: "Röddin breytist hjá öllum. Kynþroskaskeiðið er eðlilegur hlutur. Ég er með besta raddþjálfarann í öllum heiminum og við erum að vinna að röddinni minni og að gera það sem ég þarf að gera. Það er ekki eins og maður hætti að syngja þegar maður byrjar í mútum."

Hann sagði einnig: "Usher er besti kennarinn í heiminum og hann komst í gegnum múturnar. Hann segir mér hvað ég á að gera og hvað ég á ekki að gera."

sara@gossip.is

Deila á Facebook