Kerry Katona er hætt með Adam Waldron.

Kerry og Adam voru saman í heila þrjá mánuði, en ákváðu að hætta saman í síðustu viku eftir heiftarlegt rifrildi. Hefur Kerry ákveðið í kjölfarið að hún þurfi ekki á karlmanni að halda til að verða hamingjusöm.

"Ég vil ekki vera kærasta neins", sagði Kerry við News Of The World.

"Í fyrsta sinn á ævinni finnst mér ég geta verið ein. Ég ætla að vera á lausu".

"Ég var ekki ástfangin af Adam. Ég var það aldrei".

gossip@gossip.is

Deila á Facebook